Leikskólinn Mánaland óskar eftir leikskólakennurum

Leikskólinn er tveggja deilda 30 barna leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára. Mánaland vinnur að því að verða heilsueflandi leikskóli. Við leggjum áherslu á holla og góða næringu auk góðrar almennrar lýðheilsu. Við vinnum með Vináttuverkefnið Blæ á báðum deildum leikskólans. Leikskólinn okkar er í sífelldri þróun. Við leitum því að leikskólakennurum sem eru tilbúnir til að ganga í liðið okkar og þróa starfið enn meira ásamt því að vera hluti af samfélaginu okkar. Við hugsum stórt og erum að undirbúa byggingu nýs, þriggja deilda, 60 barna leikskóla sem við áætlum að flytja inn í á næsta ári.

Við leitum að starfsfólki í eftirtalin störf:

    • Leikskólakennarar
    • Leikskólakennarar með stuðning
    • Sérkennslustjóri/Sérkennari
    • Þroskaþjálfi
    • Leiðbeinendur

Við leitum að starfsmönnum sem hafa:

    • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
    • Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti.
    • Reynslu af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
    • Lipurð og sveigjanleika í samskiptum.
    • Frumkvæði í starfi og faglegan metnað.
    • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Við bjóðum upp á:

    • Tækifæri til símenntunar.
    • Þátttöku í þróun leikskólastarfsins.
    • Að verða hluti af fersku, áhugasömu og faglegu vinnuumhverfi sem er í stöðugri þróun.
    • Húsnæðishlunnindi.
    • Aðstoð við að útvega húsnæði.
    • Flutningsstyrk
    • Umfram allt skemmtilegan vinnustað.

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara. Leiðbeinendur falla undir kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og Foss.

Starfshlutfall: 100% eða eftir samkomulagi.

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn leiðbeinandi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun.

Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 10.08. 2022.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 30.4.2022

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergný Ösp Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 487 – 1241 og tölvupósti á manaland@manaland.is.

Umsóknir ásamt ferilskrá, meðmælendur, og afrit af leyfisbréfi auk sakavottorðs má senda inn hér: http://manaland.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn