Leik & Sprell

Leik og Sprell verður í Vík í Mýrdal í sumar! Söng- og leiklistarnámskeið með nóg af sprelli og skemmtileg sýning sett upp fyrir aðstandendur í lok námskeiðs.
 

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.

Kennt er tímabilið 7.-11. júlí, kl. 9:00-12:00, verð: 28.000 kr. Athygli er vakin á því að Mýrdalshreppur greiðir niður 10.000 krónur fyrir börn með lögheimili í Mýrdalshreppi.
Í greiðsluferli skal setja inn kóðann VIK10 og afslátturinn birtist. Kennari námskeiðsins er Bára Lind Þórarinsdóttir en fyrir skráningu, nánari upplýsingar um námskeið og kennara má finna á leikogsprell.is

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!