Laust starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks

Félagsráðgjafi/Þroskaþjálfi í málaflokk fatlaðs fólks

Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks. Um er að ræða 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu sem annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 6000 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands, Félagsráðgjafafélags Íslands eða annarra félaga sem við eiga.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og eftirlit með þjónustu sveitarfélagana við fatlað fólk
  • Sinnir ráðgjöf ásamt fræðslu, leiðsögn og stuðningi við þjónustunotendur og starfsmenn
  • Hefur yfirlit yfir þjónustuþega og þá þjónustu sem veitt er og vinnur þjónustumat í samstarfi við aðra sérfræðinga
  • Umsjón með SIS mati, samþættingu þjónustu, þjónustu stuðningsfjölskyldna og þeirrar stoðþjónustu sem við á
  • Tengiliður við greiningarstofnanir og aðra þjónustuaðila fatlaðs fólks
  • Virk þátttaka í mótun verkferla
  • Virk þátttaka í endurskoðun reglna

Menntunar og hæfnikröfur:

  • Starfsréttindi sem þroskaþjálfi eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður
  • Þekking á málaflokknum, lögum og reglugerðum æskileg
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

 

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands eða viðkomandi félag.

Til greina kemur að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2023. Umsóknum skal skilað til Svövu Davíðsdóttur, framkvæmdastjóra félags- og skólaþjónustu í tölvupósti á svava@felagsmal.is með umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn. Nánari upplýsingar veitir Svava Davíðsdóttir í síma 487-8125 eða á netfangið svava@felagsmal.is