Mýrdalshreppur auglýsir starf sundlaugarvarðar laust til umsóknar.
Vinnutími er breytilegur, ýmist dag – og kvöldvaktir, og helgarvaktir. Sjá má nánari upplýsingar um opnunartíma íþróttamiðstöðvar á vefsíðu sveitarfélagsins, en hann kann að taka breytingum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er íþrótta- og tómstundafulltrúi Mýrdalshrepps.
Helstu verkefni
- Afgreiðsla og sundlaugarvarsla
- Þjónusta við viðskiptavini
- Almenn þrif og annað sem til fellur
- Reglubundið eftirlit með öryggiskerfum og sundlaugarbúnaði
- Eftirlit og eftirfylgni með ásýnd og útliti vinnustaðar
Hæfnikröfur
- Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára
- Framúrskarandi þjónustulund.
- Framúrskarandi samskiptafærni og sveigjanleiki.
- Snyrtimennska
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Hreint sakavottorð.
- Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfir fyrir að upplýsingar um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4.mgr. 10.gr.laga nr.70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2.mgr.10.gr sömu laga.
Launakjör eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2026. Umsóknum skal skilað á netfangið myrdalshreppur@vik.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Austurvegi 17 í Vík. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni, til að sækja um starfið.