Kveðjumessa undir Eyjafjöllum

Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur lætur af störfum 31. október nk.

eftir rúma 10 ára þjónustu undir Eyjafjöllum.

Af því tilefni verður kveðjuguðsþjónusta í Eyvindarhólakirkju, sunnudaginn 21. nóvember nk. kl. 14:00.

Félagar úr kirkjukór Eyfellinga leiða söng undir stjórn Brians R. Haroldssonar organista.

Eftir guðsþjónustuna er öllum viðstöddum boðið að þiggja kaffiveitingar sóknarnefndanna undir Eyjafjöllum í

félagsheimilinu Heimalandi, í umsjón kvenfélaganna á svæðinu.