Hvetjum húseigendur til að huga að gróðri á lóðum

Mýrdalshreppur hvetur húseigendur til að huga að gróðri á lóðum sínum og ganga úr skugga um að tré, runnar og annar gróður nái ekki út fyrir lóðarmörk þar sem þeir geta hindrað umferð gangandi vegfarenda eða skert sýn á götum og gatnamótum.
 
Mikilvægt er að klippa greinar og annan gróður sem slútir yfir gangstéttir, gönguleiðir og akbrautir þannig að tryggt sé að umferð geti farið þar um með öruggum hætti. Með góðri umhirðu gróðurs stuðlum við sameiginlega að snyrtilegu og öruggu umhverfi fyrir alla íbúa og gesti sveitarfélagsins.
Mýrdalshreppur þakkar íbúum fyrir gott samstarf og þátttöku í að halda sveitarfélaginu snyrtilegu og öruggu.
 
Mælst er til að lóðarhafar verði búnir að bregðast við fyrir 15. október nk. og gera nauðsynlegar úrbætur og fjarlægja þann gróður sem veldur óþægindum, hindrar umferð eða getur skapað hættu. Verði ekki brugðist við innan tilskilins frests áskilur sveitarfélagið sér rétt til að láta framkvæma verkið á kostnað eiganda/lóðarhafa og fjarlægja þann gróður sem er til vandræða eða skapar hættu fyrir umferð, aðgengi eða öryggi.