Hugrakkt og hæfileifaríkt ungt fólk í skjálftanum 2025 á Suðurlandi

Skjálftinn, hæfileikakeppni sunnlenskra ungmenna fór fram í fimmta sinn í um helgina við hátíðlega athöfn. Á hátíðinni sýndu ungmenni úr 8.-10 bekk frá Grunnskólum á Suðurlandi fjölbreytt og áhrifarík sviðsverk.
 
Það var svo sannarlega hæfileikakonfettí sem sprakk yfir allt Suðurland. Þvílíkir töfrar sem ungmenninn sýndu á sviðinu.
 
Hátíðin einkenndist af samkennd, hugrekki, vináttu og samstöðu. Verkin voru hver öðru áhrifaríkari og sendu þau öll öflugan boðskap út í samfélagið.
 
Stærstu ádeilumál þjóðarinnar voru tekin fyrir með sterkum og öflugum röddum unga fólksins. Verkin áttu það sameiginlegt að endurspegla tilfinningalitróf manneskjunnar á bæði spennuþrungin og kómískan hátt með samkenndina að vopni. Það er ljóst að framtíðin er í góðum höndum ungs fólks á Íslandi!
 
Hægt er að sjá öll atriði SKJÁLFTANS 2025 ár RÚV: SKJÁLFTINN Á RÚV

VALLASKÓLI bar sigur úr býtum við gífurleg fagnaðarlæti með verkið sitt LITRÍKIR SKUGGAR.
„Verkið speglar bakslagið sem dynur á hinsegin samfélaginu og eflir þá vonarbarátta um viðsnúninginn að ljósinu sem beinir okkur í rétta átt.“

Annað sætið hlaut Grunnskólinn í Hveragerði fyrir verkið ÞORI, GET OG VIL.
„Verkið fjallar um kvenréttindabaráttuna og það ferðalag sem konur hafa farið í til að fá sömu réttindi og karlmenn.“

Í þriðja sæti var Reykholtsskóli með verkið STERÍÓTÝPUR.
„Verkið fjallar um það að vilja falla inn í hópinn en þurfa þess ekki. Fögnum fjölbreytileikanum, einstaklingnum sem einstökum og gleðinni við það að vera maður sjálfur.“
 
Allir þátttakendur lögðu hug og hjarta í undirbúning og var afraksturinn stórglæsilegur.
 
Skjálftinnn er samfélagslegt verkefni með sjálfbærni að leiðarljósi, búinn til með það að markmiði að efla samkennd og hafa jákvæð áhrif á samfélag og menntun ungmenna.
 
 
Dómnefndina skipaði: Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir söngkona, Mikael Emil Kaaber leikari, Ágústa Eva Erlendsdóttir söng-og leikkona og Tómas Jónsson tónlistarmaður.
Opnunaratriði SKJÁLFTANS 2025: Dansakademían á Selfossi með atriðið Housewives sem tók þátt í heimsmeistarmóti Dance World Cup síðastliði sumar á Spáni.
Listamaður SKJÁLFTANS 2025: DILJÁ með lagið Skjálftalag ársins; POWER
Svið og tækni: Sigurgeir Skafti Flosason
Ljósmyndari: Dagný Dögg Steinþórsdóttir
UngRÚV: Hafsteinn VilhelmssonFramkvæmdastýring SKJÁLFTANS. Halldóra Rut Baldursdóttir hjá kromik.is
Stofnandi Skjálftans: Ása Berglind Hjálmarsdóttir
Styrktaraðili Skjálftans: SASS, Samband sunnlenskra Sveitarfélaga