Hreystivöllur/braut við Víkurskóla, vilt þú leggja lið?

Víkurskóli í samstarfi við Mýrdalshrepp ætlar að koma upp hreystibraut við skólalóðina. Við leitum því til einstaklinga og fyrirtækja í sveitarfélaginu að leggja okkur lið. Krakkarnir í Víkurskóla eru mjög áhugasöm í Skólahreysti og þetta myndi nýtast þeim mjög vel og raunar öllum íbúum sem vilja notfæra sér völlinn til heilsubótar. Frekari upplýsingar ef óskað er má senda á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is  eða bara kíkja við hjá okkur.

Hér er slóð inn á mynd af hreystivelli svipuðum og skólinn hefur hug á að setja upp: https://reykjavik.is/en/node/20533?fbclid=IwAR3A9fs_UqjXo-56IYcsNZik32eiBVdezG9XIOhGl9s1DAg5JUp_TzGcF6c