Hörpusjóðurinn

Hörpusjóðurinn var stofnaður til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur sem var einörð talskona inngildingar nýrra íbúa Mýrdalshreppi. Harpa lést langt fyrir aldur fram en setti engu að síður stórt mark á samfélagið með óþrjótandi eldmóði við skipulagningu viðburða og verkefna sem höfðu þann tilgang að draga fram allt það sem sameinar og gleður á hverjum stað. Sjóðurinn er stofnaður af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga sem ber fjárhagslega ábyrgð á sjóðnum.

Markmið sjóðsins er að auka samheldni og gagnkvæman skilning milli nýrra og rótgróinna íbúa landshlutans.

Helstu upplýsingar:

  • Styrkupphæð: 1.000.000 kr.

  • Aðilar sem starfa án hagnaðarsjónarmiða á Suðurlandi geta sótt um.

  • Verkefni sem stuðla að virkri þátttöku nýrra íbúa, tungumálanámi, menningarlæsi og eflingu félagslegs tengslanets njóta forgangs.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2026
Nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna á sass.is