Hjúkrunarfræðingur óskast við Hjallatún

Hjúkrunar og dvalarheimilið Hjallatún í Vík, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingar frá og með 1. júní 2024 og út ágúst 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fjölbreytt hjúkrun og skipulag hjúkrunarmeðferða, skipulagning vakta og verkstjórn. Staðgengill hjúkrunarforstjóra eftir þörfum
  • Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu þar sem fagmennska umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
  • Um er að ræða 100 % stöðu verkefnisstjóra 2, sem vinnur dagvaktir, kvöldvaktir, helgarvaktir og bakvaktir eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
  • Starfsleyfi landlæknis
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
  • Gott vald á íslenskri tungu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Samtaka sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

  • Umsókn sendist á netfangið hjallatun@vik.is.
  • Umsókninni þurfa að fylgja upplýsingar um menntun, starfsleyfi, sakavottorð og fyrri störf

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Berglind Jóhannesdóttir hjúkrunarforstjóri á hjallatun@vik.is. S:487-1348