Hjúkrunarfræðingur óskast í afleysingar í sumar

Hjúkrunarfræðingur óskast í afleysingar á Hjúkrunarheimilið Hjallatún í Vík frá 1. júlí til 15. september. Um er að ræða 90 % stöðu verkefnisstjóra 2 sem vinnur dagvaktir, kvöldvaktir og bakvaktir eftir samkomulagi.

Laun eru samkvæmt launasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Berglind Jóhannesdóttir hjúkrunarforstjóri á hjallatun@vik.is