Hilary Jane Tricker hefur verið ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi Mýrdalshrepps. Hún mun hefja störf 1. desember næstkomandi.
Með ráðningunni er lögð áhersla á að efla markaðs- og kynningarmál sveitarfélagsins og styðja við öflugt fjölmenningarsamfélag. Í Mýrdalshreppi býr fólk af fjölbreyttum uppruna og felast mikil tækifæri í að styrkja tengsl íbúa, greiða aðgengi að upplýsingum og hvetja til virkrar þátttöku í samfélaginu.
Mýrdalshreppur býður Hilary velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins.