Hestamannasvæði í Vík - Deiliskipulagstillaga

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögu.

Hestamannasvæði í Vík - Deiliskipulagstillaga

Deiliskipulagið nær yfir tæpa 8 ha við Kötlugarðinn austast í Vík og tekur til nýs hesthúsasvæðis fyrir átta hesthús og keppnissvæði.

Tillaga þessi liggur frammi á skrifstofu Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 5. maí 2022 til og með 17. júní 2022.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 17. júní 2022.