Einvígi aldarinnar: Opnun sýningar og hraðskákmót

Einvígi aldarinnar 50 ára! Kötlusetur fagnar þessum merka viðburði með skáksýningu og hraðskákmóti við opnun!
 
Á skákborðinu tókust á fulltrúar risaveldanna á tímum „Kalda stríðsins“, bandaríkjamaðurinn Bobby Fischer og sovéski heimsmeistarinn Boris Spassky. Þessir tveir skákmenn háðu einstaka orrustu á Íslandi sem um leið varð einn af hápunktum kalda stríðsins. Rússar höfðu haldið heimsmeistaratitlinum í skák samfleytt í 24 ár og varð Bobby Fischer fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að vinna heimsmeistaratitilinn í skák frá upphafi keppninnar 1866.
 
Albert Cañagueral var ungur námsmaður að taka sín fyrstu skref í blaðamennsku þegar einvígið fór fram. Ævintýrin höfðu dregið hann alla leið á Hnífsdal að vinna í fiski og þar var hann þegar spænskir fjölmiðlar báðu hann um að vera þeirra augu og eyru á staðnum. Albert gerði það og meira til, og nú 50 árum síðar rifjar hann upp í sýningunni í Kötlusetri einvígið, en ekki síst upplifunina af því að vera viðstaddur þennan merka viðburð.
 
Við opnunina munu Guðmundur G. Þórarinsson, þáverandi formaður Skáksambands Íslands og framkvæmdarstjóri einvígisins, ávarpa gesti og Friðrik Ólafsson, fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák og eini íslenski skákmeistarinn sem hefur lagt að velli Bobby Fisher (2x), mun segja nokkur orð um upphaf skáklistarinnar. Ljúf tónlist verður í boði hæfileikaríkra tónlistarmanna á svæðinu. Boðið verður upp á léttar veitingar.
 
HRAÐSKÁKMÓT! Fyrsta hraðskákmót Kötluseturs verður sett 15:30 og er það unnið í samvinnu við Skákskóla Íslands. Keppt verður í barna, unglinga og fullorðinsflokki og er SKRÁNING ÖLLUM OPIN í gegnum netfangið info@vik.is eða í gegnum Facebook Messenger Kötluseturs.

 

https://www.facebook.com/events/1154392208474033