Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur ráðið Einar Frey Elínarson í starf sveitarstjóri Mýrdalshrepps.
Starf sveitarstjóra var auglýst þann 5. júní s.l. og var umsóknarfrestur um starfið til og með 19. júní. Alls voru þrír umsækjendur um starfið. Ráðgjafi hjá Mögnum, Sigríður Ólafsdóttir hafði umsjón með ráðningarferlinu.
Einar Freyr hefur gegnt starfi sveitarstjóra Mýrdalshrepps frá árinu 2022 en þar áður var hann oddviti sveitarstjórnar árin 2018-2022. Hann hefur lokið BA-prófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum á Bifröst auk búfræðiprófs frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá hefur hann stundað framhaldsnám á sviði lögfræði og mannauðsstjórnunar.
Einar Freyr segir það mikinn heiður að fá að halda áfram störfum fyrir sveitarfélagið:
„Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til áframhaldandi samstarfs við sveitarstjórn, starfsfólk og íbúa Mýrdalshrepps um þau fjölbreyttu verkefni sem fram undan eru.“
Sveitarstjórn óskar Einari Frey velfarnaðar í starfi og hlakkar til áframhaldandi samstarfs um uppbyggingu og þjónustu í Mýrdalshreppi.