Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á 9 íbúðum við Sléttuveg 5a í Vík.
Um er að ræða:
Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í desember 2026
Brák íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða. Markmið félagsins er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Samkvæmt lögum og reglugerðum eru skilgreind tekju- og eignamörk, sem og viðmið um greiðslubyrði leigu.
Uppbygging íbúðanna er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og er gott dæmi um samstarfsverkefni þar sem stuðningur sveitarfélags og ríkis er nýttur til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis utan höfuðborgarsvæðisins.
Umsókn um leigu
Umsóknir skulu sendar á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is
Með umsókn skulu fylgja:
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2026
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðum þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |