Betri íslenska í starfi – kynning á námsleiðum HÍ

Tilkynning þessi er ætluð öllum þeim sem hafa mannaforráð yfir starfsfólki sem ekki hefur íslensku að móðurmáli og vilja stuðla að framförum þess í íslensku.

Undanfarin ár hafa orðið örar lýðfræðilegar breytingar á Íslandi. Stór hluti fólks á Íslandi hefur íslensku ekki að móðurmáli. Flestir eru þeirrar skoðunar að íslenska sé mikilvæg í íslensku samfélagi. Er því mikilvægt að boðið sé upp á fjölbreytt og gott nám í íslensku sem öðru máli. Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands gerir það. Hún býður upp á fjölbreyttar námsleiðir í íslensku sem öðru máli bæði í staðnámi og fjarnámi. Námið er metnaðarfullt, krefst elju og ástundunar nemenda en er jafnframt þannig upp byggt að hægt er að stunda það í hlutanámi samhliða vinnu.

Með þessari tilkynningu viljum við bjóða þér og þínu starfsfólki að sækja kynningarfund um þá námsmöguleika sem í boði eru hjá okkur. Við ætlum að halda níu kynningarfundi og getur þú skráð þig á einn eða fleiri þeirra. Allir verða þeir haldnir í gegnum Teams-fjarfundarbúnað (á internetinu) nema einn þeirra. Fundir þeir sem eru á vinnutíma taka um 30–35 mínútur með spurningum en þeir sem eru utan hefðbundins vinnutíma taka um 45 mínútur með spurningum. Kynningarnar verða á íslensku og ensku.

Dags- og tímasetning funda er eftirfarandi:

  • 27 apríl, klukkan 12:30 eða 17:00
  • 28 apríl, klukkan 10:00 eða 17:00
  • 29 apríl,klukkan 10:00 eða 12:30
  • 30 apríl, klukkan 17:00, einnig staðkynning í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði
  • 4 maí, klukkan 10:00 eða 12:30
  • 4 maí, klukkan 17:00, staðkynning í Háskólanum á Akureyri, stofa M 203

Hér er skráningareyðublað sem við biðjum þig vinsamlega um að nota hafir þú hug á að sækja einn fundanna.

Hér er hlekkur á fundina á Teams. Auðkenni fundar: 366 630 710 680 50, Lykilorð: J33gD7LB (ef þarf)

Hér má finna hlekki á námsframboð og upplýsingar um inntökupróf:

Inntökupróf í BA-nám í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð | Háskóli Íslands [English version]

*Umsóknarfrestur er til 20. maí
**Með póstinum fylgja dreifibréf sem t.a.m. má áframsenda, prenta út og hengja upp og þar fram eftir götunum
Virðingarfyllst,
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, aðjunkt – íslenskukennari, Íslenska sem annað mál við Háskóla Íslands