Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi. Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2023.

Ytri-Sólheimar 1a – VÞ14, ÍB12

Viðfangsefni breytingarinnar er breytt afmörkun reits fyrir verslun og þjónustu VÞ14 Ytri-Sólheimar 1a sem stækkar í samræmi við afmörkun lóðar fyrir Ytri-Sólheima 1a og nýr reitur fyrir íbúðarbyggð ÍB12 Ytri-Sólheimar. Innan stækkaðs reits VÞ14 verður leyfilegt að vera með tjaldsvæði og gistirúmum fjölgað lítillega eða úr 17 í 20.

Tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 26. júní til og með 7. ágúst 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 7. ágúst 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps