Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið Undir Skeri (íbúðarsvæði ÍB4 og ÍB7 og miðsvæði M5 og M7) í Vík.

Undir Skeri - Deiliskipulagstillaga

Skipulagssvæðið er um 6.2 ha að stærð og er staðsett frekar miðsvæðis í Vík og liggur hvoru megin við núverandi Hringveg 1 (sem ber nafnið Austurvegur á þessum kafla). Götur sem tilheyra skipulaginu eru Austurvegur, Kirkjuvegur, Strandvegur og Sléttuvegur.

Um er að ræða bæði nú þegar byggðar íbúðagötur svo og óbyggðar götur. Mikil fólksfjölgun hefur átt sér stað í Vík undanfarna áratugi og því er mikilvægt að skipulagt sé meira af íbúðarhúsnæði.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 26. mars til og með 7. maí 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 7. maí 2026.

George Frumuselu

skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps