Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulagsfulltrúi

Forkynning á breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 - Giljur.

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps til forkynningar í samræmi við 2. mgr 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Viðfangsefni breytingarinnar er stækkun á reit fyrir verslun og þjónustu VÞ30 Giljur. Innan reitsinss á að setja upp smáhýsi til útleigu og því er byggingarmagn aukið og gistirúmum fjölgað. Bætt er við nýjum reit fyrir íbúðarbyggð ÍB12 Giljur, þar sem er gert ráð fyrir heimildum fyrir uppbyggingu fjögurra íbúðarhúsa og tveggja frístundahúsa. Gert er ráð fyrir nýrri tengingu við þjóðveg eitt þar sem er í dag tenging við fjárhús.

Vinnslutilagan liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 2.til og með 23. mars 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 23. mars 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps