Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér kynnt lýsing aðalskipulagsbreytingar.
Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 – Vesturhluti Víkur.
Viðfangsefni breytingarinnar er breyting á skilmálum fyrir Miðsvæði M1 og fjölgun gistirúma á svæðinu, vegna fyrirhugaðra umbreytinga á gömlu iðnaðarhúsnæði sem er víkjandi landnotkun í aðalskipulagi. Jafnframt er gerð leiðrétting á byggingarheimildum á I3.
Skipulagslýsingin liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 27. nóvember til og með 18. desember 2026.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 18. desember 2026.