Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2023.
Þéttbýlisuppdráttur - Hamrahverfi – VÞ8, ÍB8 og M8
Viðfangsefni breytingarinnar er að íbúðarreitur ÍB8 stækkar og nýtt miðsvæði M8 bætist við en við þetta minnkar reitur VÞ8. Almennum skilmálum fyrir miðsvæði er breytt, þannig að hámarkshæð fer úr 2 í 3 hæðir og hámarks mænishæð úr 7 í 10 metra.
Tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 11. nóvember til og með 23. desember 2026.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 23. desember 2026.
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi Hamrahverfi í Vík í Mýrdal.
Hamrahverfi - Deiliskipulagstillaga