Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi.

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Höfðabrekku í Mýrdal.

Höfðabrekka - Deiliskipulagstillaga

Deiliskipulagstillagan nær yfir 6 ha jarðarinnar Höfðabrekku L163031 í Mýrsdalshreppi auk íbúða- og þjónustulóðir. Innan skipulags svæðisins er ætlunin að skilgreina byggingarheimildir sem gera grein fyrir frekari uppbyggingu ferðaþjónustu og heimild fyrir íbúðabyggð.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 7. september til og með 19. október 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 19. október 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps