Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi.

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Steig í Mýrdal.

Steig - Deiliskipulagstillaga

Skipulagssvæðið er um 3,2 ha og nær yfir verslunar- og þjónustusvæði VÞ26 og svæði skilgreint til landbúnaðar í Mýrdal.

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir heimildum til uppbyggingar íbúðarhúsa, gistihúsa til útleigu og heimildir sem taka til niðurrifs eldri matshluta.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 14. júlí til og með 25. ágúst 2026.
Tillöguna má opna með þessum hlekk: Deiliskipulag Steig

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út þriðjudaginn 25. ágúst 2026.

George Frumuselu

skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps