Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustusvæði VÞ41 við Kerlingardal í Mýrdal.
Kerlingardalur - Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan nær yfir um 0,6 ha svæði og gerir ráð fyrir frekari uppbyggingu á ferðaþjónustu á svæðinu. Gerð er ráð fyrir einni nýrri lóð innan svæðisins.
Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 8. september til og með 20. október 2025.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 26. september 2025.