Auglýsing um lóðaúthlutanir í Mýrdalshreppi

Mýrdalshreppur auglýsir hér með eftirfarandi lóðir í hesthúsahverfi í Vík, lausar til úthlutunar:

  • Reiðvegur 1 : undir hesthús.
  • Reiðvegur 2 : undir hesthús.
  • Sléttuvegur 1 : undir fjölbýlishús á tveimur hæðum með allt að 12 íbúðir.

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsmál má nálgast á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 17, Vík.

Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Mýrdalshreppi. Umsóknarfrestur er til 14. febrúar 2023. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@vik.is.

George Frumuselu       

Skipulags- og byggingarfulltrúi 

Mýrdalshrepps