Auglýsing um lóðaúthlutanir í Mýrdalshreppi

Mýrdalshreppur auglýsir hér með eftirfarandi lóðir í Vík, lausar til úthlutunar.

  • Smiðjuvegur 22 : undir iðnaðarstarfsemi.
  • Smiðjuvegur 23 : undir iðnaðarstarfsemi.
  • Smiðjuvegur 24 : undir iðnaðarstarfsemi.

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsmála má nálgast á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 17, Vík.

Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Mýrdalshreppi. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2022. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@vik.is.

George Frumuselu

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Mýrdalshrepps