Alexandra Chernyshova ráðin skólastjóri tónskólans í Vík

Ljósmynd: Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Ljósmynd: Sigurbjörn Daði Dagbjartsson

Alexandra Chernyshova, óperusöngkona, tónskáld og kennari hefur verið ráðin skólastjóri tónskólans í Vík. Hún mun taka við starfinu í byrjun júlí.


Alexandra á langan feril í kennslu og hefur m.a. starfað sem skólastjóri eigin söngskóla, söngkennari og kennt í grunnskóla. Hún hefur auk þess samið og sett upp eigin óperur, haldið fjölmarga tónleika, stýrt kórum og tónlistarhátíðum. Alexandra lauk M.Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands, M.Ed. gráðu frá Háskólanum í Kiev, meistaragráðu í óperusöng og söngkennaraprófi frá Odessa tónlistarakademíunni og B.ED gráðu frá National Kiev Linguistic University. Þá útskrifaðist Alexandra jafnframt nýverið með MA gráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Alexandra er boðin velkomin til starfa hjá Mýrdalshreppi og henni óskað velfarnaðar í starfi.


Boðið verður upp á kynningu og áheyrnarprufur fyrir tónskólann í sumar áður en innritun hefst í haust og eru foreldrar hvattir til að fylgjast með auglýsingum á heimasíðu sveitarfélagsins og á Facebook.


Alexandra tekur við starfinu af Brian R. Haroldssyni sem hefur starfað sem skólastjóri tónskólans frá árinu 2015. Brian eru færðar þakkir fyrir sín störf í þágu tónlistar og menningar í sveitarfélaginu og óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem taka við.