Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – V26 Ytri-Sólheimar

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028.

Breytingin fellst í sér að verslunar- og þjónustusvæði V26, Gisti- og ferðaþjónusta á Ytri-Sólheimum er stækkað úr 1,2 ha í 7,7 ha og nýtingarhlutfall lækkað í 0,1.

Breytingartillagan og umhverfismatsskýrsla liggja frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík, má nálgast hér eða á Skipulagsstofnun frá 9. desember 2021 til og með 22. janúar 2022.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 22. janúar 2022.

George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps