Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – Þórisholt

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028.

Breytingin felur í sér skilgreiningu á verslun og þjónustu á jörðinni Þórisholti. Gert er ráð fyrir gistiþjónustu af gerðinni hótel eða gistiheimili í skilningi reglugerðar um gististaði og veitingaþjónustu.

Breytingartillagan liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík, má nálgast hér eða á Skipulagsstofnun frá 27. október 2021 til og með 10. desember 2021.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 10. desember 2021.