Skrifstofa Mýrdalshrepps hefur flutt í nýtt húsnæði við Smiðjuveg 7 í Vík, í nýtt hús Pennans.
Aðalinngangurinn er á suðurhlið hússins, austasta hurðin (sjá á mynd).
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað, formleg opnun verður síðasta dag vetrar, miðvikudaginn 22. apríl en þá mun leikskólinn Mánaland vera með ljósmyndasýningu í ráðhúsinu og boðið verður upp á léttar veitingar.