Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi

Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi fimmtudaginn 18. janúar kl. 09:00-10:15. Fjallað verður um rekstur og þjónustu í jarðgöngum á Íslandi og hvernig er staðið að vöktun þeirra. Einnig verður farið yfir hvernig brugðist er við þegar eldur kviknar í bíl í jarðgöngum en slíkt atvik átti sér stað í Hvalfjarðargöngum síðla árs 2023.

Dagskrá fundarins:

Opnun fundar. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.

Hvað gerist þegar eldur kviknar í bíl? Valgarður Guðmundsson, sérfræðingur á Suðursvæði Vegagerðarinnar.

Búnaður í jarðgöngum og umfang rekstrar. Hávarður Finnbogason, sérfræðingur á tækjabúnaðardeild, og Steinþór Björnsson, verkefnastjóri jarðganga í vegaþjónustudeild.

Vöktun í jarðgöngum. Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs.

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson

  • Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ.
  • Opið er á meðan húsrúm leyfir. Það verður heitt á könnunni.
  • Hægt verður að senda inn fyrirspurnir í gegnum vefsíðuna; Slido.com. Lykilorðið er „jardgong“.
  • Fundinum verður streymt á eftirfarandi slóð: https://youtube.com/live/A9BhgK5skMM?feature=share

Nánari upplýsingar á vef Vegagerðarinnar