Tilkynning um fyrirhugaða úthlutun leyfa til jöklaferða

Mýrdalshreppur tilkynnir hér með að unnið er að undirbúningi auglýsingar þar sem rekstraraðilum ferðaþjónustu verður gefinn kostur á að sækja um leyfi til að stunda atvinnustarfsemi á Sólheimajökli og í Kötlujökli.

 

Um verður að ræða tímabundin rekstrarleyfi fyrir jöklaferðir. Gert er ráð fyrir að umsækjendur sem hljóta leyfi greiði veltugjald sem miðast við fjölda farþega til að hægt sé að sinna landvörslu og eftirliti.

 

Auglýsing með nánari skilyrðum, umsóknarfresti og fyrirkomulagi greiðslna verður birt á næstu vikum.

 

Ferðaþjónustuaðilum sem hyggja á starfsemi á jöklum innan marka sveitarfélagsins er bent á að kynna sér lög nr. 100/2021 um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.

 

Frekari upplýsingar veitir Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps, sveitarstjori@vik.is