Skaftárhreppur & Mýrdalshreppur - Útboð

Skaftárhreppur & Mýrdalshreppur - Útboð

Sveitarfélögin Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur óska eftir tilboðum í verkið:

Sorphirða í Vestur-Skaftafellssýslu

Verkið fellst í tæmingu á sorp- og endurvinnsluílátum við hús í Skaftárhreppi og Mýrdalshreppi, flutningi úrgangs og afsetningu ásamt rekstri gámastöðva í sveitarfélögunum.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Útboðsgögn fást send frá og með mánudeginum 22. maí 2023. Sendið beiðni á sveitarstjori@klaustur.is og gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer og netfang.

Tilboðum skal skilað til skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustri fyrir kl. 11:00 mánudaginn 26. júní 2023 og verða þau opnuð þar.