Styrktarsamningur vegna Voices of Vík

Í dag undirrituðu Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri og Ann Irene Peters verkefnisstjóri styrktarsamning vegna samfélagsverkefnisins Voices of Vík. Með samningnum veitir Mýrdalshreppur verkefninu 500.000 króna styrk og gjaldfrjáls afnot af félagsheimilinu Leikskálum vegna viðburða þess.

Voices of Vík miðar að því að efla tengsl íbúa og skapa vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn getur hist, deilt reynslu og menningu og æft tungumál saman. Meðal fyrirhugaðra viðburða eru tungumálakaffi, samverustundir við varðeld, kvikmyndakvöld, samfélagslistaverkefni og hæfileikakeppnin Vík’s Got Talent.

Verkefnið hlaut fyrr á árinu eina milljón króna úr Hörpusjóðnum og var fyrsta verkefnið sem hlaut styrk úr sjóðnum. Hörpusjóðurinn er samfélagssjóður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, stofnaður til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur. Sjóðurinn styður verkefni sem efla inngildingu nýrra íbúa á Suðurlandi og stuðla að aukinni samheldni og gagnkvæmum skilningi milli íbúa með ólíkan bakgrunn.

Stuðningur Mýrdalshrepps er í samræmi við inngildingarstefnu sveitarfélagsins og markmið þess um að efla þátttöku og tengsl íbúa. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með viðburðum Voices of Vík og taka þátt í að efla mannlíf í sveitarfélaginu.