Píanókennari óskast við Tónskóla Mýrdalshrepps

Tónskóli Mýrdalshrepps leitar að metnaðafullum píanókennara til starfa frá og með næsta skólaári í 80% stöðu.

Tónskóli Mýrdalshrepps var stofnaður haustið 1981. Skólinn býður upp á nám í hljóðfæraleik og söng ásamt kennslu í öðrum tónlistargreinum sem gert er ráð fyrir í Aðalnámskrá Tónlistarskóla.

Gildi tónskólans eru tónlist, gleði og sjálfstraust.

Í vetur voru sjötíu og tveir nemendur í hljóðfæra-og/eða söngtónlistarnám og áttatíu og tveir nemendur voru í forskóla tónlistarnámi við Tónskóla Mýrdalshrepps. Fjórir kennarar starfa við skólann og er aðstaða til kennslu mjög góð. Flestir nemendur sækja kennslu á skólatíma grunnskóla. Fjölbreytt tónlistarlif, góð starfsandi og faglegur metnað ríkir í Tónskólanum.

Kjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og FÍH við Launanefnd sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Alexandra Chernyshova, skólastjóri Tónskólans í síma 894 5254, eða með tölvupósti: tonskoli@vik.is

Starfssvið:

Píanókennsla og meðleikur með nemendum. Æskilegt er að viðkomandi sé jafnvigur á klassíska og rytmíska spilamennsku.

Menntunar-og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í píanóleik eða sambærileg menntun
  • Reynsla af tónlistarstarfi og kennslu
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveingjanleiki og stundvísi
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum og fullorðnum
  • Hreint sakavottorð

Við leitum eftir einstaklingi sem vill vaxa í starfi, taka þátt í uppbyggingu tónlistarstarfs í Vík. Sveitarfélagið veitir aðstoð við húsnæðismál.

Einnig er í boði verktakavinna organista við Víkuprestakall. Upplýsingar um organista stöðu gefur séra Jóhanna Magnúsdóttir í síma: 895 6119 eða á netfanginu: johanna.magnusdottir@kirkjan.is

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferli ásamt afritum af prófskírteinum/diplomum/gráðum/leyfisbréfum. Einning er óskað eftir kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsinga um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.