Öskudagur 2022

Það var mikið stuð í skrifstofu Mýrdalshrepps á Öskudaginn og töluvert öðruvísi persónur sem heimsóttu okkar í dag en þær sem venjulega heimsækja okkur. Það var gaman að sjá hversu mikill fjölbreytileiki var í búningum. Á þessum degi gátum við einnig séð stuðning þeirra við Úkraínu þar sem börn eru að upplifa hörmungar stríðsins.

Kærar þakkir til barnanna sem komu og skemmtu okkur með fallegum söng.