Nýr bæklingur um viðbúnað – Verum viðbúin

Nú er kominn út bæklingur, Verum viðbúin, sem ætlað er að styðja við íbúa til að takast á við óvæntar aðstæður. Bæklingnum var dreift rafrænt til allra íbúa 18 ára og eldri í gegnum island.is þriðjudaginn 3. nóvember.

Að auki verður prentuð útgáfa bæklingsins dreift af björgunarsveitum um land allt á næstu dögum, í tengslum við sölu á Neyðarkallinu. Bæklingurinn er einnig aðgengilegur á vefnum Verum viðbúin (verumvidbuin.is) á íslensku, ensku og pólsku, auk þess sem efnið er aðgengilegt á íslensku táknmáli og á auðlesnu máli. Von er á lesnum bæklingi á hljóðformi til að tryggja sem best aðgengi fyrir sem flesta.

Sveitarfélagið hvetur alla íbúa til að kynna sér efnið og nýta sér þær upplýsingar sem þar koma fram. Með því að vera vel upplýst og undirbúin getum við öll betur tekist á við óvæntar aðstæður og stuðlað að auknu öryggi í samfélaginu.

  • Nánari upplýsingar má finna á íslensku ⮕ hér
  • Nánari upplýsingar má finna á íslensku (auðlesin) ⮕ hér
  • Nánari upplýsingar má finna á íslensku (táknmálstúlkun) ⮕ hér
  • Further information can be found in English ⮕ here
  • Więcej informacji można znaleźć w języku polskim ⮕tutaj