Laust starf við kennslu í Víkurskóla, Vík í Mýrdal

Víkurskóli Vík í Mýrdal auglýsir 100% stöðu kennara við skólann lausa til umsóknar fyrir skólaárið 2022-2023

Meðal kennslugreina; list- og verkgreinakennsla, heimilisfræði og ýmsar aðrar kennslugreinar koma til greina.

Umsækjendur skulu hafa tilskylda menntun og reynslu til starfsins og góð tök á íslensku í ræðu og riti. Lögð er áhersla á að umsækjandi sé sveigjanlegur og hafi góða samskiptahæfni og vilja til að taka þátt í samstarfi og teymisvinnu.

Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.

Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2022

Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2022

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknir auk ferilskrár skulu sendar á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 /7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is