Hugmyndakeppni um endurbætur Leikskála

Félagsheimilið Leikskálar
Félagsheimilið Leikskálar

Á að mála? Á að skreyta? Hvernig viljum við að félagsheimilið okkar líti út?

Sveitarstjórn hefur samþykkt tillögu Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráðs (FFMR) um að efnt verði til hugmyndasamkeppni um lagfæringar á ytra byrði félagsheimilisins Leikskála.

Íbúar eru hér með hvattir til þess að senda inn hugmyndir að endurbótum utandyra sem myndu falla vel að því sem þegar hefur verið gert innan og utandyra.

Hugmyndir má senda á sveitarstjori@vik.is eða skila inn á skrifstofu sveitarfélagsins að Austurvegi 17.

Hugmyndir verða lagðar fyrir næsta fund FFMR og hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

 

Einar Freyr, sveitarstjóri