Hilary Jane Tricker ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi

Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri og Hilary Jane Tricker nýráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi…
Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri og Hilary Jane Tricker nýráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi.

Hilary Jane Tricker hefur verið ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi Mýrdalshrepps. Hún mun hefja störf 1. desember næstkomandi.

Með ráðningunni er lögð áhersla á að efla markaðs- og kynningarmál sveitarfélagsins og styðja við öflugt fjölmenningarsamfélag. Í Mýrdalshreppi býr fólk af fjölbreyttum uppruna og felast mikil tækifæri í að styrkja tengsl íbúa, greiða aðgengi að upplýsingum og hvetja til virkrar þátttöku í samfélaginu.

Mýrdalshreppur býður Hilary velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins.