Göngum í skólann 2022

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 78 skólar skráðu sig til leiks árið 2021.

Á heimasíðu Göngum í skólann eru allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum, en einnig annan fróðleik sem snýr að heilsueflingu og umferðarfræðslu.

www.gongumiskolann.is

Með kveðju,
fyrir hönd Göngum í skólann verkefnisins