Glæsileg vortónleikarröð og skólaslit Tónskóla Mýrdalshrepps

Vortónleikaröð Tónskóla Mýrdalshrepps hófst með glæsibrag á vorhátíðinni Vor í Vík með tónleikunum Kammerkórs Tónskóla í Víkurkirkju á Sumardeginum fyrsta. Á efnisskránni voru fjölmörg skemmtileg lög, erlend og íslensk, allt frá Óðurinn til gleðinnar eftir Ludwig van Beethoven til We will rock you eftir Queen eða Ó, blessuð vertu sumarsól. Á tónleikunum komu fram fleiri en þrjátíu tónlistarnemendur og voru þau vel sóttir. Tónskóli var áberandi á þessu ári á hátíðinni Vor í Vík. Vortónleikar voru í Icewear, Súpufélaginu, Hjallatúni og Leikskálum og alls staðar var rikjandi tónlistargleði.

1.maí öng Kammerkórinn á tónleikunum með Sinfóniuhljómsveit Íslands undir stjórn Evu Ollikanien og þetta var ógleymanlegt. Það má sannarlega segja að Kammerkór Tónskólans og Sinfóníuhljómsveit Íslands sungu sig inn í hjarta Mýrdælinga á þessum tónleikunum. Flutningur á laginu Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns verður lengi i minningu áhorfenda.

8.maí Tónlistarskóli tók á móti 52 manna ungmannahljómsveit frá Westmont College undir stjórn Dr. Ruth Lin. Það var viðburð á vegum Tón-klúbbsins N.11. Það var frábær stemmning í salnum, margar forvitnilegar spurningar og skemmtileg hljóðfæra kynning hjá hljómsveitinni. Eftirminningarlegur var flutningur af laginum úr Star Wars eftir John Williams. Í lok dagskránnar söng tónskólastjóri Alexandra Chernyshova og dansaði Vikivaki úr frumsömdu óperunni „Skáldið og Biskupsdóttirin“ og bauð erlendum gestum að dansa með, sem gerði mikla lukku.

Mikið var gaman að sjá afreksturinn í vor á Vortónleikunum tónskólans í Leikskálum sem nemendur í öllum greinum komu fram, sungu og spiluðu á ólikt hljóðfæri.

Á þessu skólaári tóku 15 nemendur 1 og 2 stigs í söng, píanó, gítar, bassagítar, trommur og tónfræði.

Síðastalíðin mánúdag var hátíðarlegur skólaslit í Tónskólanum með tónlistaratriðum, viðurkenningum og námstyrkjum.

Þetta skólaár 2024-2025 nemendur á leik-og grunnskólaaldri fá viðurkenningar í okkar tónskóla í öllum deildum og fá inneign í áframhaldandi nám við tónskólann sem nemur 5.000kr. Þetta ár námstyrkurinn kemur frá tónleikaröðinni Sunnlenskum Tónblæ

  • Framtíða tónlistarvon tónlistarskólans - Helena Kalandyk ( söngur) (4 – 5 ára)
  • Framtíða tónlistarvon tónlistarskólans – Katrín Jóhannsdóttir ( píanó ) (1.-3.bekk)
  • Söngur - Laufey Atladóttir Waagfjörð
  • Píanó – Freyja Atladóttir Waagfjörð
  • Gítar – Hilmir Blær Jónsson
  • Trommur - Ýmir Hrafn Richardt Sveinsson
  • Horn - Hilmir Blær Jónsson
  • Klarínétt - Laufey Atladóttir Waagfjörð
  • Syngjandi alda – Harpa Sóllilja Ólafsdóttir
  • Tónfræði - Ingólfur Atlason Waagfjörð

Takk fyrir samvinnu og tónlistargleðina á þessu viðburðaríka skólaári.

Gleðilegt sumar!