Erlent starfsfólk í ferðaþjónustu – ráðningarferli og fjölmenning

Á fundinum verður sjónum beint að ráðningarferli þegar kemur að ráðningu erlendra ríkisborgara og fjölmenningu á vinnustöðum.

Fagleg og góð móttaka nýs starfsfólks er lykillinn að farsælu samstarfi. Mismunandi reglur gilda fyrir erlenda ríkisborgara eftir því hvort þeir koma frá aðildarríki innan eða utan EES/EFTA.

Kynntar verða leiðbeiningar fyrir atvinnurekendur og starfsfólk til að auðvelda þeim ráðningarferlið og gefa yfirsýn yfir það sem þarf að gera.

Dagskrá stendur frá 9.00 til 9.45 og hægt verður að fylgjast með í streymi á fésbókarsíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.

DAGSKRÁ

  • Þegar ráða á erlenda ríkisborgara til starfa - Kynning á nýju verkfæri
    Valdís A. Steingrímsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
  • Fjölbreytileikinn vinnur! Hvers vegna skiptir góð móttaka máli?
    Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs
  • Áskoranir og tækifæri á fjölmenningarlegum vinnustað
    Sólborg Steinþórsdóttir, hótelstjóri Icelandair hótel Mývatn
  • Reynslusaga
    Lidija Lopac, vaktstjóri Icelandair hótel Reykjavík Marína

Fundarstjóri Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF