EP Power Minerals Iceland ehf. boðar til kynningarfundar í samkomuhúsinu Tunguseli í Skaftárhreppi kl. 20 þann 21. apríl. Verða þar kynnt fyrirhuguð áform um útflutning á sandi um nýja bryggju við Alviðruhamra á austanverðum Mýrdalssandi. Farið verður yfir stöðu verkefnisins, niðurstöður rannsókna og hvað er framundan. Allir áhugasamir eru velkomnir
Hér er umhverfismat framkvæmdarinnar í Skipulagsgátt: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/307
Og hér má sjá fréttaumfjöllun um verkefnið frá því í mars 2025: https://www.visir.is/g/20252703904d/bryggjan-sem-gaeti-rofid-hafnleysu-skaft-fellinga
Þó að mannvirki verði að mestu í Skaftárhreppi, þá verður efnistakan sjálft í Mýrdalshreppi og Vík er það þéttbýli sem er næst framkvæmdasvæðinu, svo mikilla áhrifa myndi gæta þar. Það er því líklegt að einhverjir íbúar í Mýrdalshreppi hafi áhuga á framkvæmdinni.