Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulagsfulltrúi

Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2023 – Norður og Suður-Foss.

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2023.

Um er að ræða breytingar á greinargerð og uppdrætti aðalskipulagsins, verslunar- og þjónustusvæði VÞ33 Norður- Foss. Svæðinu er skipt í tvö svæði og fær nýtt verslunar- og þjónustusvæðið heitið VÞ46 Suður-Foss. Einnig er bætt við svæði fyrir íbúðarbyggð, ÍB11, við hlið verslunar- og þjónustusvæðanna.

Breyting á deiliskipulagi Norður-Foss.

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi Norður-Foss.

Fjöldi gistirúma á reitum A, B, C, D og E er 250. Fjöldi gistirúma á reitum F og G verður 400. Kvöð er á lóð Norður-Foss um aðkomu að Suður-Fossi.

Þessar tillögur liggja frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 6. júní til og með 18. júlí 2025.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 18. júlí 2025.

George Frumuselu
Skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps