Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Kaldrananes í Mýrdal.

Kaldrananes - Deiliskipulagstillaga

Deiliskipulagstillagan nær yfir 2,3 ha jarðarinnar Kaldrananes L163046 í Mýrsdalshreppi auk sumarbústaðarlands L163159. Innan skipulags svæðisins er ætlunin að skilgreina byggingarheimildir sem gera grein fyrir hugsanlegri stækkun núverandi íbúðarhúss, heimild fyrir byggingu íbúðar- og frístundahúsa, landbúnaðarbyggingu/skemmu auk þess sem heimild verður fyrir uppbyggingu íbúðarhúss innan lóðar 163159.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. apríl til og með 9. júní 2025.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 9. júní 2025.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps