Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér kynnt lýsing aðalskipulagsbreytingar.
Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 – Sléttuvegur 5-9.
Viðfangsefni breytingarinnar er breyting á landnotkun lóðanna að Sléttuvegi 5–9, innan landnotkunarreitsins VÞ44. Fyrirhugað er að koma fyrir nýrri slökkviliðsstöð á svæðinu, sem nú er skilgreint sem VÞ44. Sá hluti verður skilgreindur sem AT3, en restin af svæðinu verður hluti af ÍB7, þar sem gert er ráð fyrir fjölbýlishúsum. Með þessu fellur VÞ44 út.
Skipulagslýsingin liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 23. október til og með 13. nóvember 2026.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 13. nóvember 2026.