Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi. Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2023.

Giljur – VÞ30, ÍB13

Viðfangsefni breytinganna er stækkun á reit fyrir verslun og þjónustu VÞ30 Giljur. Innan reitsins á að setja upp smáhýsi til útleigu og því er byggingarmagn aukið og gistirúmum fjölgað. Bætt er við nýjum reit fyrir íbúðarbyggð ÍB13 Giljur, þar sem er gert ráð fyrir heimildum fyrir uppbyggingu fjögurra íbúðarhúsa og tveggja frístundahúsa. Gert er ráð fyrir nýrri tengingu við þjóðveg eitt þar sem er í dag tenging við fjárhús.

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Giljur í Mýrdal.

Giljur - Deiliskipulagstillaga

Skipulagssvæðið er um 12 ha og nær yfir verslunar- og þjónustusvæði VÞ30, íbúðarsvæði ÍB13 og svæði skilgreint til landbúnaðar í Mýrdal.

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir heimildum til uppbyggingar íbúðarhúsa, landbúnaðarbygginga og gistihúsa til útleigu.

Tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 15. júní til og með 27. júlí 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 27. júlí 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps