Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi. Skipulagsfulltrúi

Óveruleg breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033

 

Breyting á VÞ26 Steig

 

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkti á fundi sínum 14. nóvember 2024 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Um er að ræða breytingu á texta í greinargerð. Gerð er breyting á skilmálum fyrir verslunar- og þjónustusvæðið VÞ26 Steig. Hámarks byggingarmagn reits VÞ26 er aukið úr 600 m í 1500m².

 

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps.

 

f.h. Sveitarstjórnar Mýrdalshrepps

George Frumuselu

Skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps